20. október 2006

Fjárhagsnefnd Héraðsnefndar.

Í dag kl. 11.30 hófst þriðji fundur fjárhagsnefndar og var hann haldinn á Bæjarskrifstofunum í Hveragerði.  Fundurinn stóð til 12.50 og var þá farið beint á fund Héraðsnefndar sem hófst kl. 13.00.
Bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar eru í einstaklega björtu og fallegur húsnæði, takk fyrir góðar móttökur.

Lesa meira

19. október 2006

Bæjarráð Árborgar kl. 8.10

Í morgun hófst fundur Bæjarráðs kl. 8.10 eins og  nær hvern fimmtudag ársins.  Á þessum fundi voru reglur um sérstakar húsaleigubætur til umfjöllunar og fundagerð félagsmálanefndar þar sem mælst var til að þær yrðu samþykktar.  Reglurnar verða síðan staðfestar á bæjarstjórnarfundi í nóvember.

Lesa meira

19. október 2006

Sérstakar húsaleigubætur í Árborg.

Lesa meira

18. október 2006

Fundur í skólanefnd grunnskóla í Árborg.

Í dag var fundur í skólanefndinni og hófst hann kl. 17.10 og var slitið um 20.30.   Þessi fundur var óvenju langur þar sem yfirleitt er reynt að láta fundina ekki standa lengur en í tvær klukkustundir.  Á þessum fundi var nefndin að afgreiða erindi frá bæjarráði vegna flutnings á nemendum úr Vallaskóla í Sunnulækjarskóla.  Skólanefnd mælti með niðurstöðu vinnuhópsins að ekki yrðu fluttir nemendur á milli skóla í elstu bekkjunum heldur fengi Sunnulækjarskóli að stækka ár frá ári.  Einnig voru til umfjöllunar nokkrar tillögur frá Hilmari Björgvinssyni og svör við fyrirspurnum frá honum frá síðasta fundi nefndarinnar.  Fundagerð skólanefndar er komin á vef Árborgar, http://www.arborg.is.

Lesa meira

18. október 2006

Fjárhagsnefnd Héraðsnefndar

Í dag kl. 11.00 hófst annar fundur nefndarinnar og stóð hann til 14.00.  Í dag voru forstöðumenn stofnana kallaðir fyrir og farið yfir fjárhagsáætlarnir ársins 2007.

Lesa meira

17. október 2006

Meirihlutafundur kl. 17.00

Í dag var fundur í meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar sem hófst kl. 17.00 og stóð til 20.15

Lesa meira

16. október 2006

Fundur í fjárhagsnefnd Héraðsnefndar

Í dag kl. 16.00 hófst fyrsti fundur í fjárhagsnefnd Héraðsnefndar Árnesinga til undirbúnings fyrir fund Héraðsnefndar á föstudaginn 20. okt.  Fundurinn stóð til 17.30

Lesa meira