Bæjarmálahópur B listans hittist kl 8.00 og stóð fundurinn til 10.00
Meirihlutinn hittist kl. 17.00 og stóð sá fundur til kl. 20.30
|
||
27. febrúar 2007
Bæjarmálahópur B listans hittist kl 8.00 og stóð fundurinn til 10.00 Meirihlutinn hittist kl. 17.00 og stóð sá fundur til kl. 20.30 26. febrúar 2007
Í dag kl. 13.00 fór stjórn Tónlistaskólans ásamt Róbert skólastjóra og Helgu Sighvatsdóttur í skoðunarferð í grunnskóla í lágsveitum. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðstæður skólans í grunnskólum til kennslu. Við byrjuðum á að fara í Flóaskóla, þar er nokkuð vel búið að skólanum en kennslan fer fram í félagsheimilinu Þjórsárveri, en stendur til að flytja hana inn í skólann. Þaðan lá leiðin á Stokkseyri þar sem er ágætis kennslustofa, síðan á Eyrarbakka þar sem kennt er á Stað í fínni stofu. Betra væri þó að hafa kennsluna inni í skólanum en það lagast þegar nýji skólinn verður tilbúinn. Næst fórum við í Þorlákshöfn þar sem aðstaða skólans hefur verið til fyrirmyndar um langt skeið. Skólinn hefur kennslusvæði útaf fyrir sig og er það vel. Síðast komum við í Hveragerði og eru aðstæður skólans þar mjög góðar, fínar stofur. Skemmtileg ferð þar sem alltaf er gaman að skoða grunnskola. 22. febrúar 2007
Í morgun var fundur í bæjarráði kl. 8.00 sem stóð til rúmlega 9. 20. febrúar 2007
Þann 6. febrúar fórum við til Canarí eyja og vorum þar til 20. febrúar. Ferðin var í alla staði frábær. Við fórum með vinum okkar Einari og Ellu Veigu í Egilsstaðakoti. Veðrið var eins og best verður á eyjunni frá 22 stiga hita og upp í 33 gráður. Við fórum í Hellaferð og skoðuðum heimili fólks sem þar býr. Ótrúlegt að koma inn í hella árið 2007 sem fólk býr í með öll nútíma þægindi. Ég hef nú ekki trú á því að við Íslendingar myndum láta okkur hafa það að búa í hellum. En ótrúlegt að hver hellir var með mörgum herbergjum. Canarí eyjar er falleg eyja en samt frekar hrjóstrug þar sem lítið er um vatn og sjaldan rignir. Nær allur gróður á eyjunni er gróðursettur og vökvaður til að hann lifi. Eyjan er góður hvíldarstaður fyrir okkur Íslendinga. |
||
© 2024 Margrét Katrín Erlingsdóttir |