Í dag komu iðnaðarmenn í röðum að taka út aðstæður og hefjast handa. Smári rafvirki kom og klippti á nokkra víra og aftengdi það sem þurfti. Tryggvi pípari og Helgi komu og litu á pípulagnir, einnig gáfu Þeir ráð vegna ofnakaupa, nýja glerið í bakhliðina kom frá Samverk í morgun. Glugginn í bakhliðina býður tilbúinn í Gluggaverksmiðjunni hjá Eðalhúsum. Atli hélt áfram að brjóta niður veggi og bráðum fer að koma að málurunum í viðgerðir og grunnun, en þar verða að verki Ægir og félagar í Málningaþjónustunni. Þetta er töluverð framkvæmd, en mjög spennandi.