Í morgun kl. 8.00 hófst fundur hjá bæjarmálahópnum okkar á B listanum. Við hittumst alltaf á þriðjudagsmorgnum. Þá mæta sex efstu menn listans og fara yfir málefni vikunar og það sem framundan er. Frábært fyrir okkur Þorvald að eiga svo góðan hóp sem gefur sér 1 – 2 klst í viku hverri fyrir bæjarfélagið sitt.
Meirihlutinn hittist kl. 16.00 eins og venjulega á þriðjudögum og stóð fundurinn til rúmlega átta.