Í fyrramálið fara fulltrúar sveitarfélagsins á vinarbæjarmót til Kalmar í Svíþjóð. Vinarbæjarmót eru skemmtilegur vettvangur til að kynnast því sem er verið að gera í sveitarfélögum erlendis. Vinabæir Árborgar eru, Arendal í Noregi, Silkiborg í Danmörku, Savolinna í Finnlandi og Kalmar í Svíþjóð.
Ég ætla ekki að fara að þessu sinni því miður, ég kemst ekki frá í vinnunni þessa dagana og Jónas er í háskólanum að klára námið sitt. Ég fór á vinarbæjarmót til Arendal í Noregi fyrir tveimur árum og var það ógleymanleg ferð. Þar eignuðumst við vini sem við höldum alltaf sambandi við.
Góða ferð og njótið ferðarinnar.