Í dag á mamma mín afmæli og er 70 ára. Hún er fædd að Bæ í Trékyllisvík í Árneshreppi á Ströndum. Foreldrar hennar voru Anna Jakobína Guðjónsdóttir og Samúel Samúelsson sem lést þegar hún var lítil stúlka. Fósturfaðir mömmu var Kristinn Jónsson frá Seljanesi. Mamma er alin upp á Dröngum í Árneshreppi, en þangað fluttu amma og afi þegar börnunum fór að fjölga á Seljanesi. Drangar er góð jörð þar sem ávallt var nægur matur handa barnahópnum. Mamma og systkini hennar eru 14 talsins. Afkomendur ömmu minnar og afa eru um 170.
Mamma mín býr á Hellu ásamt pabba og rekur hún þar blóma og gjafavörverslunina Hjá Vinsý sem stendur á árbakkanum þegar þú kemur yfir brúna. Hún vinnur fullan vinnudag og slær ekki slöku við. Hún er að heiman í dag, en hún fór norður á Strandir og er nú á heimleið frá æskuslóðunum á Dröngum.
Til hamingju með daginn mamma mín.