Í dag fórum við Jónas í bústaðinn til mömmu og pabba í Gulllandinu. Einnig komu systur mína Hólmfríður og Anna Kristín ásamt mönnum sínum. Við borðuðum góðan mat en skruppum síðan öll ásamt mömmu og pabba upp í Landmannalaugar sem eru einungis „101“ km. frá Hellu um Dómadal. Í Laugunum var Sammi bróðir og Ásta kona hans ásamt vinum sínum í hestaferð. Dásamlega fallegt í Landmannalaugum.