Í kvöld kom Erlingur minn heim í mat og voru þá strákarnir mínir allir heima í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Erlingur er í verkfræðinámi í HR og býr í Kópavogi. Það er mikið að gera hjá honum þannig að fáar stundir gefast til að líta á þau gömlu. En í tilefni af afmæli Gústafs á mánudaginn komu þeir allir heim til okkar í mat.. Dásamlegar stundir þegar þeir eru allir hjá okkur strákarnir, stundir sem verða færri og færri eftir því sem árin líða.