Í dag kl. 17.00 voru afhent umhverfisverðlaun Árborgar í Tryggvagarði. Að þessu sinni var veitt viðurkenning til einstaklings og fyrirtækis. Hún Sigga í Björk hlaut viðurkenningu fyrir einstaklega umhverfisvænan ferðamáta en hún fer allra sinna ferða á reiðhjóli og hefur alla tíð gert í hvaða veðri sem er, er ávallt með poka með sér og tínir upp rusl í leiðinni sem verður á vegi hennar. Olís Arnbergi fékk viðurkenningu fyrir einstaklega snyrtilegt umhverfi og umhirðu. Það mættu mörg fyriirtæki taka þá Olís á „Bellubar“ sér til fyrirmyndar og gera eins fínt hjá sér og halda því við. Eftir afhendingu viðurkenninga hófu bæjarfulltrúar og gestir hreinsunarátak sveitarfélagsins „tökum á – tökum til“.