Í dag kl. 18.15 hófst fundur stjórnar tónlistaskólans og stóð hann til 19.00.
Á fundinum vorum við fyrst og fremst að fara yfir stjórnunarkvóta skólans. Í síðustu kjarasamningum var stjórnunarkvóti tónlistaskóla aukinn í 1300 stundir á ári sem eru rétt tæp 2 stöðugildi fyrir utan skólastjóra. Skólanefnd samþykkti að auka stjórnunarkvóta skólans um 20% og er þar um að ræða deildarstjórnun í strengjadeild og er þá stjórnunarkvóti skólans fullnýttur.