Í dag fórum við Jónas á handboltaleik í Íþróttahúsinu við Vallaskóla. Þar voru að spila 2. flokkur Selfoss og ÍBV. Strákarnir okkar stóðu sig vel og unnu 33 – 24. Góður leikur hjá strákunum.
Við litum síðan í kaffi til Önnu Stínu systir og Hafsteins þar sem spáð var í lífsins gagn og nauðsynjar.
Um kvöldmat fórum við til Reykjavíkur á fund í hjónaklúbbnum okkar en við höfum ekki náð saman nokkuð lengi. Góð og notaleg stund í hópi vina.
Ekkert veður var í dag til hrossaflutninga.