Í morgun fór ég til vinnu kl. 7.00 og var að til þrjú. Það er ansi gott að vera í vinnunni á frídögum þá hringir síminn ekki og manni vinnst vel.
Jónas og Jón mágur hans voru í Kringlumýrinni að setja saman fataskápa í herbergin hjá drengjunum. Vorum svo með grill fyrir okkur öll um kvöldið og áttum góða stund með góðum vinum.