Við vorum boðin í hádegismat til Guðbjargar og Gústafs í dag. Tilefnið er 25 ára afmælisdagur tengdadótturinnar. Hjartanlega til hamingju Gugga mín.
Við fórum síðan seinnipartinn Í Kópavoginn þar sem ég var veislustjóri í 50 ára afmæli hjá Þórarni Þórhallssyni mjólkurfræðingi. Tóti er skólabróðir Jónasar frá Dalum í Danmörku. Veislan var mjög flott og heppnaðist vel, kátt á hjalla og gleði. Innilega til hamingju Tóti.
Við gistum hjá Holla og Hönnu.