Í ágúst ætlum við hjónin ásamt Möggu mákonu og Jóni til Nuuk á Grænlandi í heimsókn til Atla mágs míns og Inge konu hans. Atli hefur búið á Grænlandi í mörg ár og er orðið löngu tímabært að heimsækja hann og fjölskyldu hans. Við ætlum að stoppa í 5 daga og hlökkum við mikið til.