Í dag fórum við í göngutúr um landið okkar í Tjarnabyggð. Nú er verið að skipuleggja girðingar og hólfaskiptingu landsins. Við verðum með um 5,5 hektara af landi og munum við skipta því niður í hólf til að stýra beitinni. Við stefnum á að láta girða núna á næstu dögum.
Í Tjarnabyggð var dásamlegt veður í dag, fuglasöngur í lofti og útsýni út í blámann.