Í dag höfum við verið á ferð og flugi, fórum í bústaðinn til tengdó „Krækishóla“ sem eru í Villingaholtshreppi, kíktum á kofann okkar sem stendur þar í grendinni. Fórum yfir í Merkurlautina og litum við hjá móðursystrum Jónasar, Ástu og Hólmfríði. Þar eru miklar framkvæmdir í gangi við byggingu sumarhúsa og viðbyggingar. Þegar heim kom var móðurbróðir minn Guðjón mættur með stóru klippurnar sínar til að snyrta til trén í garðinum. Tekinn var púlsinn á málefnum ættarinnar og rætt um ættarmótið sem framundan er í Trékyllisvík síðustu helgina í júlí. Þar hittast afkomendur ömmu minnar og hennar systkina og eiga saman helgi á slóðum forfeðranna.