Í dag er miðbarnið á heimilinu hann Gústaf tvítugur. Það er hreint ótrúlegt hve tíminn líður hratt og börnin verða fljótt fullorðinn þó að maður sé ekki að eldast neitt sjálfur ! (að manni finnst) Gústaf býr heima hjá okkur og er í námi í Háriðn í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann er á samning á Stofunni hér á Selfossi og klippir eins og herforingi alla daga. Hann spilar síðan sem trúbador í Kaffikrús um helgar til að létta róðurinn fyrir veturinn. Hann stendur sig vel drengurinn. Til hamingju með daginn Lilli minn.