Í morgun fór ég ásamt 30 konum í óvissuferð um uppsveitir Árnessýslu. Þetta er önnur svona ferðin sem ég fer í þetta vorið um uppsveitirnar. Ótrúlegt hve margt forvitnilegt er verið að gera í sveitum landsins. Við skoðuðum kertaverksmiðju, tómatarækt, jarðaberjarækt, svepparækt, leirlistargallerý, kirkjur, Hrepphólahnjúka með allri sinni fegurð, drukkum kaffi og borðuðum kökur í alveg nýju kaffihúsi á Flúðum, Grund, snæddum síðan kvöldmat á Hótel Geysi. Frábærlega vel heppnuð ferð.