Í dag hófust strákarnir í Eðalhúsum handa við að setja sperrur á húsið okkar. Allt er þetta að taka á sig nýja mynd við hvert handverk þeirra.
Við fórum til Reykjavíkur í dag og vorum að skoða flísar, hurðir, innréttingar, heimilistæki og fleira sem setja á í húsið í sumar. Einnig skoðuðum við kamínur, en við verðum með kamínu í stofunni.
Spennandi tímar.