Allt er á fulli við byggingu á íbúðarhúsinu okkar og hesthúsinu í Tjarnabyggð. Búið er að steypa sökkla undir bæði húsin og hefur landmótun í kring verið í gangi. Á föstudaginn stendur til að steypa plötuna á grunn íbúðarhússins. Húsið er síðan tilbúið í einingum hjá Eðalhúsum en við kaupum af þeim íbúðarhúsið tilbúið undir málningu. Afhending hússins til okkar verður í júlí nk.