Í dag voru húseiningarnar fluttar að Norðurgötu 3 í Tjarnabyggð. Húsbyggingin gengur ótrúlega vel hjá þeim strákunum í Eðalhúsum. Þegar maður fylgist með verkefninu dag frá degi þá er auðséð að fagmennska og snyrtimennska í þessu fyrirtæki er mikil. Það er alveg sama hvenær maður kemur aldrei sér maður rusl eða drasl á staðnum. Það skiptir miklu máli á stað sem þessum þar sem víðáttan er mikil og ruslið er fljótt að fjúka. Það mættu fleiri byggingaaðilar taka þessa stráka sér til fyrirmyndar. Allavega erum við alveg í skýjunum með okkar menn og þeirra umgengni við náttúruna.
Ætli verði komið hús fyrir helgi….? Læt ykkur fylgjast með.