Í fréttum síðustu daga og vikur hefur mikið verið rætt um uppbyggingu hafnar við Bakkaflugvöll og sitt sýnist hverjum í þessum máli sem eðlilegt er.
Það sem ég undra mig á í þessu máli er "hvernig náðist fjármagn í þetta verkefni á svo stuttum tíma" ? Við getum horft á svo mörg verkefni á vegum ríkisins sem hefur verið barist í um árabil jafnvel áratugi en ekkert gengur…. má þar til dæmis nefna Suðurlandsveg.
Ef til eru peningar í þessa höfn á sandinum, væri þá ekki betra að kaupa hraðskreiðari ferju og stækka og styrkja hafnirnar í Þorlákshöfn og í Vestmannaeyjum ? Það mundi styrkja atvinnustarfsemi í Vestmannaeyjum að geta tekið á móti skemmtiferðaskipum við höfnina.
Ég man eftir erlendum togara sem strandaði á Landeyjarsandi þegar ég var krakki og pabbi minn vann við það heilt sumar að reyna að bjarga honum á flot…. en það var hreinlega ekki hægt þar sem sandburður er svo mikill og straumar svo erfiðir….
Er verið að fara vel með almannafé í þetta verkefni ?
Hvernig fékkst fjármagn í þetta verkefni á svo stuttum tíma ?
Er þetta vegna pólitískra áhrifa sveitastjórna inn í ríkisstjórn landsins ?
ja þegar stórt er spurt er fátt um svör.