Við höfum það fyrir venju að fara í Skeiðaréttir og stundum í Tungnaréttir. Við byrjuðum í Reykjarétt á Skeiðum. Í dag er frekar kalsalegt, slydda og rok. Menn voru vel búnir í vatnsgöllum og margur með pela í vasa. Við fórum síðan upp í Tungur og fengum okkur réttarsúpu í bústaðnum hjá Eyvindi og Guðrúnu í Fellskoti. Alltaf er súpan hennar Rúnu jafn góð. Kátt var á hjalla, slegið á létta strengi og tekið lagið. Í Tungunum var snjókoma og var allt orið hvítt, og þegar við keyrðum frá Fellskoti þá var drjúgt slabb á veginum, við fórum niður Skeiðin og voru þá flestir, þó ekki allir, langt komnir á heimleið ríðandi. Þó voru fjárrekstrar á ferðinni enn og áttu töluvert langt heim. Við hittum Einar í Egilsstaðakoti og börnin hans við Skálmholt þá snjóaði á þau og var ansi kalt en hitastigið var á núlli. Við fórum í Kotið og fengum okkur réttarsúpu með húsráðendum og gestum þeirra. Síðan var sest í stofu og tekið lagið fram eftir kvöldi. Frábær réttardagur þó að veðrið væri með allra versta móti.