Í dag var hefðbundinn vinnudagur og enginn fundur….! Í morgun komu gömlu vinnufélagarnir í VGK-Hönnun í morgunkaffi í nýja húsnæðið. Við höfum haft gott morgunkaffi saman alla föstudaga meðan við leigðum saman í gamla Árvirkjahúsinu. Nú er stefnan að hittast áfram sitt hvorn föstudaginn á hvorum stað. í kvöld fórum við síðan út að borða með Gústaf og Unni Ósk, við fórum á Menam, alltaf jafn gott að koma þar góð þjónusta og góður matur.