Ég mætti í vinnu kl. 8.00 í morgun á nýja skrifstofu. Dagurinn var þægilegur og frekar rólegur. Skrifstofan er notaleg og er hljóðvistin töluvert betri en á gamla staðnum. Umferðarhávaðinn er mikið minni sem betur fer. Ég lét skipta um gler í framhliðinni sem skiptir sköpum í hljóðeinangrun.
Það er stór áfangi að vera komin í eigið húsnæði með reksturinn. Góður dagur á skrifstofunni.