Á fimmtudagsmorguninn næsta fljúgum við Jónas ásamt Möggu mágkonu og Jóni hennar til Nuuk á Grænlandi. Atli mágur minn býr þar með sína fjölskyldu og hefur gert í mörg ár. Við erum að fara til þeirra í heimsókn í fyrsta sinn. Mikil tilhlökkun er í okkur vegna ferðarinnar.