Í morgun fórum við Prinsessur af stað í leiðangur til fjalla með Dúnu á Húsatóftum, í hópnum voru 22 konur, 4 rekstrarmenn, 1 matráður og Dúna. Við riðum af stað frá Ásum í Gnúpverjahreppi að Fossnesi yfir Gaukshöfðann og inn allan Þjórsárdal. Við riðum í gegn um skóginn og lúpínubreiðurnar í sól og hita…en það var auðvitað mikið ryk enda ekki ringt dögum eða vikum saman. Daginn enduðum við í Kletti og gistum þar. Góður dagur, komum í kofa skítugar en mjög sáttar með daginn.