Í gærkvöldi komu ríðandi úr Mosfellsbænum æskuvinir mínir frá Hellu, bræðurnir Pálmi og Runólfur Smári Steinþórssynir, ásamt eiginkonum Smára, henni Bettý og Steinþóri syni þeirra. Þau höfðu verið í rigningu nær alla leiðina þannig að hrossin voru fegin að komast í hús hér á Selfossi. Við riðum síðan með þeim á stað í dag í slagveðri en þau voru á leið í sumarhagana með hrossin að Berustöðum í Ásahreppi.