Í dag var opnuð sýningin Árborg 2007 sem stendur í tvo daga. Sýningin fer fram í Íþróttahúsinu við Sólvelli. Sýningin er einstaklega vel upp sett og frábært að sjá hve mörg fyrirtæki sáu ástæðu til að taka þátt í verkefninu. Sveitarfélagið var með bás á sýningunni í samstarfi við nokkur félög í sveitarfélinu. Á sýningunni mátti sjá fyrirtæki eins og Gluggaverksmiðju Eðalhúsa, SG einingahús, Ræktó, Lögmenn Suðurlandi, Fagform og svo mætti lengi telja. Frábært framtak og flott sýning.