Í kvöld var óvissuferð Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss. Við fórum á stað um kl. 18.00 og lá leiðin upp Skeiðin, stoppað í kertasmiðjunni í Gósen…alveg hreint frábær framleiðsla þar. Fórum þaðan áfram upp í Gullhreppa og stoppuðum í Gallerí í Miðfelli hjá Rut, sem er glerlistamaður. Leiðin lá áfram um æskuslóðir Helgu frænku og í Hvítárbakka til Systu sem málar á grjót, hún býr til ótrúlega fallega hluti. Við enduðum á að borða í Reykholti á Kletti, fengum þar fínan mat og góða þjónustu. Gott kvöld með góðum vinum.