|
maí 1st, 2007
Hér ólst mamma mín upp.
Drangar
Drangar voru stórbýli að fornu, en þar var föst búseta allt til ársins 1966 og enn dvelst fjölskyldan sem síðast bjó á Dröngum þar sumarlangt. Bærinn er norðan við hin víðþekktu Drangaskörð og er mjög einangraður, þangað er aðeins farið gangandi, ríðandi eða á sjó. Á Dröngum standa mörg merkileg hús, m.a. mjög forn hákarlahjallur sem nýverið var lagfærður. |
|
Á Dröngum – ljósmynd: Vignir Örn Pálsson |
Túnið á Dröngum er vel gróið og hvönnin setur mikinn svip á umhverfið. Gríðarmikið kríuvarp er líka í túninu á Dröngum. Yfir bænum gnæfir Bæjarfjall, hömrum girt og skriðurunnið. Á Dröngum var forðum bænhús enda kirkjuvegur erfiður og langur. Hlunnindi eru gríðarmikil á Dröngum, selveiði, æðarvarp og reki.
|
Gamall hákarlahjallur á Dröngum – ljósmynd: Vignir Örn Pálsson |
Skammt norðan við Dranga fellur Húsá til sjávar, að hluta til í gljúfrum. Þar eru tveir fossar – Stórifoss heitir sá efri og Nónfoss sá neðri. Göngubrú er á Húsá. Vestur af ánni er Laugamýri þar sem heitt vatn er að finna. Þar hefur verið gerð baðlaug.
Þorvaldur Ásvaldsson, faðir Eiríks rauða, var landnámsmaður á Dröngum. Er sagt að hann sé heygður að Meyjarseli, sem er nokkuð norðan við Dranga. Þar eru miklar tóftir á Meyjarselstanga. Upp af tanganum eru þrír Selhólar og á Þorvaldur að hvíla í einum þeirra. Fram af Meyjarselstanga er Tólfmannaboði. Þar eiga að hafa farist 12 menn sem voru á leið í messu að Dröngum á gamlársdag. Tekið af vestfjarðarvefnum. http://www.vestfirdir.is
maí 1st, 2007
Hér ólst mamma mín upp.
Drangar
Drangar voru stórbýli að fornu, en þar var föst búseta allt til ársins 1966 og enn dvelst fjölskyldan sem síðast bjó á Dröngum þar sumarlangt. Bærinn er norðan við hin víðþekktu Drangaskörð og er mjög einangraður, þangað er aðeins farið gangandi, ríðandi eða á sjó. Á Dröngum standa mörg merkileg hús, m.a. mjög forn hákarlahjallur sem nýverið var lagfærður.
|
|
Á Dröngum – ljósmynd: Vignir Örn Pálsson |
Túnið á Dröngum er vel gróið og hvönnin setur mikinn svip á umhverfið. Gríðarmikið kríuvarp er líka í túninu á Dröngum. Yfir bænum gnæfir Bæjarfjall, hömrum girt og skriðurunnið. Á Dröngum var forðum bænhús enda kirkjuvegur erfiður og langur. Hlunnindi eru gríðarmikil á Dröngum, selveiði, æðarvarp og reki.
|
Gamall hákarlahjallur á Dröngum – ljósmynd: Vignir Örn Pálsson |
Skammt norðan við Dranga fellur Húsá til sjávar, að hluta til í gljúfrum. Þar eru tveir fossar – Stórifoss heitir sá efri og Nónfoss sá neðri. Göngubrú er á Húsá. Vestur af ánni er Laugamýri þar sem heitt vatn er að finna. Þar hefur verið gerð baðlaug.
Þorvaldur Ásvaldsson, faðir Eiríks rauða, var landnámsmaður á Dröngum. Er sagt að hann sé heygður að Meyjarseli, sem er nokkuð norðan við Dranga. Þar eru miklar tóftir á Meyjarselstanga. Upp af tanganum eru þrír Selhólar og á Þorvaldur að hvíla í einum þeirra. Fram af Meyjarselstanga er Tólfmannaboði. Þar eiga að hafa farist 12 menn sem voru á leið í messu að Dröngum á gamlársdag.
Tekið af vestfjarðarvefnum.
http://www.vestfirdir.is
|
|