Drangaskörð
Af Drangaskörðum dregur Drangavík nafn sitt og einnig bærinn Drangar. Skörðin eru áberandi þar sem þau rísa upp úr landinu og vekja jafnan mikla athygli þeirra sem komast í návígi við þau. Þótt þau séu vel þekkt vita fáir nöfnin á einstökum skörðum og tindum. Örnefni gefa til kynna að þeir sem bjuggu næst dröngunum hafi talið þá vera fimm en tveir dranganna eru tvískiptir. Áður fyrr þegar farið var yfir skörðin var oftast farið um svokallaða Signýjargötu, sem liggur um Signýjargötuskarð. Það er ysta skarðið, en Litlitindur er þar utar. Um vetrartíma þegar klaki var yfir öllu var þó stundum farið um Kálfskarð sem er á milli tvískiptu tindanna tveggja. Um önnur skörð var sjaldan farið. |