Í sumar er vinabæjarmót í Kalmar í Svíþjóð. Árborg er í vinabæjarsamstarfi með fjórum löndum. Arendal í Noregi, Kalmar í Svíþjóð, Savolinna í Finnlandi og Silkiborg í Danmörku. Vinabæjarsamstarf er skemmtilegur vettvangur til að kynnast starfi í öðrum löndum. Kynnast fólki sem er að starfa á sama vettvangi og við en við allt aðrar aðstæður. Við höfum farið á tvö slík mót, fyrst hér í Árborg og síðan í Arendal. Við eignuðumst mjög góða vini frá Arendal sem hafa heimsótt okkur fjóru sinnum og við höfum farið einu sinni til þeirra. Mjög skemmtilegur vettvangur til vinatengsla.