Í dag er yngsti drengurinn okkar 17. ára og kominn með bílpróf. Marinó er nemandi í Fjölbrautarskóla Suðurlands og Tónlistaskóla Árnesinga. Hann hefur verið í námi í trommuleik í nokkur ár hjá Stefáni Þórhallssyni. Hann spilar í tveimur hljómsveitum ásamt skólagöngunni. Marinó er líka í handbolta og spilar með Selfoss.
Maður sér í börnunum sínum hve tíminn líður hratt, það eru nú ekki mörg ár finnst mér síðan hann byrjaði í leikskólanum Ásheimum hjá Kiddý og síðan í grunnskólanum, en nú er hann að verða fullorðinn maður sem tekur ábyrgð á eigin lífi. Samt finnst okkur foreldrunum við ekki hafa elst neitt miðað við strákana okkar.

Hann var mjög fús í morgun að keyra mömmu sína í vinnuna þó að ég ætti að mæta tveimur tímum á undan honum.